Saturday, October 13, 2012

Oji Zoo

Í dag fórum við í dýragarð. Upphaflega hafði ég hugsað mér að fara í dýragarð á afmælinu hennar Ylfu en á endanum mátti það ekki bíða lengur. Það vill nefninlega svo til að ég hef mesta dálæti af dýragörðum sjálf svo þetta var eiginlega meira fyrir mig en Ylfu, ok svona 65% ég og 35% Ylfa, Nökkvi og Iðunn voru svo dregin með til að upplifa dýrðina. Við ákváðum að fara í Oji Zoo þar sem hann er hvorki sá dýrasti né sá fjærsti. Við vorum svo þreytt í gær að við sofnuðum meira að segja extra snemma og vorum því öll vöknuð árla morguns og tilbúin í slaginn. Nökkva blöskraði það svo svakalega að ég skildi ætla að taka tösku með að hann neitaði að taka litlu regnhlífakerruna (sem við vorum að kaupa, kostaði klink) og vildi frekar fara með stóru strætókerruna. Ég varð auðvitað passlega pirruð á móti og sagði að hann mætti svosem ráða þessu en að hann yrði þá að ýta líka. Hann var til í það og við gátum komið okkur í lestina. Fyndið hvað fólk tekur alltaf strax eftir Ylfu í kerrunni en aldrei eftir Iðunni, samt situr hún fyrir framan en Ylfa fyrir aftan. Það var ungt par í lestinni í dag sem spjallaði mikið um Ylfu og svo heyrðum við þegar þau föttuðu að það væri annað barn rétt áður en við stoppuðum á miðju stoppinu.
       Lestarferðin að þessu sinni var alveg bærileg, reynar nokkuð heitt og troðið á köflum en ekkert til að kvarta yfir. Þegar við vorum komin á rétta stöð skutumst við út úr lestinni og flýttum okkur að finna lyftu til að komast út. Við Ylfa fórum inn á fyrsta skítuga klósettið í Japan og snérum eiginlega strax við. Dýragarðurinn er vel auglýstur og greinilegt að það er gert ráð fyrir ferðafólki úr lestinni því það voru skilti út um allt sem vísuðu á garðinn. Klukkan var rétt ný orðin 10 þegar við komum þrammandi með risa kerruna okkar. Það streymdi fólk á eftir okkur inn í garðinn og við flýttum okkur innar í garðinn. Við ákváðum að byrja á "klapp" partinum af dýragarðinum (þetta er mín þýðing á petting zoo og ég held mig við hana) því við vildum að Ylfa væri enn í góðu skapi þegar hún fengi nú að klappa dýrunum. Hún gekk kotroskin við hliðin á mér meðan Nökkvi ýtti kerrunni. Hugrekkið var samt ekki meira en svo að þegar við sáum fyrstu hænuna koma röltandi í átt til okkar hljóp Ylfa upp á prammann á kerrunni og gargaði á fuglsófétið að fara. Þetta var ekki beint hæna, einhverskonar frænka hennar með bláar og hvít doppóttar fjaðrir. Við sáum hvar börn voru að fá að halda á og klappa kanínum og naggrísum en þegar við sáum röðina fannst okkur ráðlegra að sleppa því. Við gengum aðeins um og sáum hin og þessi dýr. Ég sá stóru ástina mína skömmu eftir að við vorum farin frá "klapp"garðinum. "Hver er þessi undursamlega vera?" gæti einhver verið að spyrja sig. Svarið er Rauð PANDA. Ég ELSKA rauðar pöndur, vildi að þær væru gæfar og til í að búa með mér og knúsast. Nökkva fannst mest spennandi hvað hún væri með massívar lappir. Ég tók auðvitað myndir þangað til að dýrið svona um það bil leit á mig en svo gengum við áfram. Við sáum kóalabjörn hanga steinsofandi upp í tré og annan sem var vakandi og horfði mæðulega á okkur bakvið glervegg.
         Það er mjög mikið og fjölbreytt dýraríkið í Oji Zoo en hann er samt mest að fókusa á risa pöndurnar sem búa þarna. Við biðum spennt eftir að sjá dýrin en það var bara annað þeirra úti og lág í þokkabót í skugganum og svaf. Ekki mikið að sjá þar, nema pöndu rass. Við ráfuðum svo beina leið inn í skemmtigarð sem er í miðjum dýragarðinum. Þá lifnaði yfir Úlfaskottinu sem sá fullt af hlutum sem hana langaði til að prófa og gera og hún hálf sveif inn á undan okkur og horfði svo agndofa á öll ljósin og tækin sem voru í boði. Þarna var krúttleg hringekja sem er ekki svo ólík þeirri sem er í Húsdýragarðinum. Ylfa, glögg eins og vanalega, mundi eftir því að Viktoría og Ásdís Katrín fóru í hringekjuna án hennar í sumar og vildi því ólm fara í þessa. Það var því úr að ég skildi fara með henni en Nökkvi stæði á hliðarlínunni og passaði Iðunni og okkar veraldlegu eignir. Við fengum hringekjuna út af fyrir okkur þar sem við misstum rétt af fyrri ferð. Ylfa ætlaði að setjast í hestvagn en ég sagði að það væri nú ekkert spennandi og dróg hana á eftir mér að finna hest. Mér leist líka ekkert á það að fara að reyna troða okkur báðum inn í vagninn. Ylfa valdi sér bláan hest en fór að kjökra þegar ég sagði að hún yrði að sitja á baki þegar tækið færi af stað. Það tók ekki meira en hálfan hring að hætta að vera ógnvekjandi og hún hékk brosandi og spennt á baki á meðan að uppáhalds lagið hennar úr Totoro spilaði í hátölurunum. Mér fannst þetta álíka spennandi og henni sjálfri og hékk fast við hlið hennar. Þeim tókst ágætlega að plokka frá okkur peningana í skemmtigarðinum, við fórum meðal annars í purikura (myndatökubás) og skemmtum okkur vel við að pósa og fíflast með stelpurnar. Ylfa fékk að drekka og við Nökkvi keyptum okkur kók með miklu kaffibragði. Ylfa náði líka að væla sér út íspinna á meðan við Nökkvi jöpluðum á takuyaki og kartöflubátum sem voru fyrir neðan gæðakröfur okkar. Snobbliðið kláraði samt matinn og hélt áfram að skoða dýr og taka myndir. Ylfa var misjafnlega hrædd við dýrin, best fannst henni ef þau voru á bak við þykka glerveggi því þá væri hægt að koma nær án þess að þau næðu í mann. Skógarbirnirnir voru spennandi, sérstaklega sá sem lág ofan í vatninu og settið trínið á rúðuna. Krókódílarnir voru ógnvekjandi þó þeir væru í smærri kantinum. Gíraffarnir voru STÓRIR og áttu helst að vera úti að hennar mati. Ég dáðist af öllum dýrunum og tók myndir eins og trylltur túristi en Ylfa gladdist mest yfir því að finna akarn á gangstéttinni. Það er þó nokkuð um akörn í Totoro svo litla dýrið okkar æpti yfir garðinn "Mamma, DONGURI!!" en svo missti hún það úr kerrunni og foreldrarnir neituðu að leita. Við sáum fílaparið og Ylfa óttaðist það mest að þeir kæmu og ætu Pikachu dúkkuna sem hangir á kerrunni þeirra. Ferðinni lauk svo hjá páfuglabúrinu sem var mesta heppni því það er næsta búr frá pöndunni sem hafði loksins ákveðið að vakna og sat nú upp á þaki og japlaði á bambus. Ég gat smellt mynd af henni úr fjarska en nennti engan vegin að standa í röð til að komast nær. Við héldum heim á leið nokkuð hress með árangurinn. Stelpurnar voru samt orðnar helst til þreyttar þegar við komum heim svo restin af deginum er búin að fara í að slappa af, við vorum komin heim klukkan að ganga fjögur og stelpurnar komnar upp í rúm klukkan 19. Við tókum svakalega mikið af myndum í dag, en hér er toppurinn af ísjakanum. Gjössovel...

Flamingóar - bleikir, hvítir og gráir

Á göngu í "klapp"garði

Ferðafélagarnir

Ástmaður minn Hr. Rauður Panda

Slappað af með gullfiskum 

Ylfa skoðar kóala

Ævintýraleg brú, Nökkvi og Ylfa gengu aðeins út á hana

Sofandi panda, við tókum samt mynd til vonar og vara

Það má kaupa gleði í smá tíma

Feðginin alltaf jafn alvarleg

Ef Nökkvi hefði líkamsbyggingu dvergs

Hvar er Jóhanna

Api, ákvað seinna að bera á sér kynfærin þegar honum fannst Nökkvi of ógnandi

Buslu bangsi

"Kisa" = gaupa

Ylfa og Nökkvi skoða dýr, Iðunn las af kortinu á meðan

Listrænn krókódíll (pun fyrir mömmu og pabba)

Sjáðu!

"Um hvað ertu að hugsa?"
-"Ekkert, bara eðludót"

Þokkafullt

Afslappað lið

Frelsi gíraffans, tekið í gegnum skítuga rúðu

Skuggalega liðið

Emúi (right?)

*Jóhanna tekur mynd af fallegum blómum
Nökkvi: "Hættu að vera faggi"

Þessi rétt nennti að skjóta upp hausnum og stakk sér svo aftur á kaf

Að skoða mörgæsir er ágætis afþreying

Hestastytta og skemmtigarður

"Nökkvi skoðar dýrin"

Sofandi Iðunn, sá hvort sem er svo lítið fyrir sólhattinum

Fílarnir

Einn venjulegur og einn albínói. Páfuglar eru töff.

Panda og myndavélar

Þreyttur kerrustjóri

Ylfa að störfum

"Pabbi taktu mynd af mér"

Eins og sjá má hefur Ylfa lært af innfæddum og pósar hér með stæl
Nú gerist ábyggilega ekkert merkilegt í nokkra daga, enda þetta yfirdrifið af myndum (38 stk jafnvel).

-Jóhanna


Friday, October 12, 2012

Heima að taka myndir

Vorum ekki að gera neitt sérstakt, sem ætti á sama tíma að útskýra afhverju við vorum að taka myndir.

Iðunn lærði að klifra upp á dótakassann í dag

Ylfa borðar frosna jógúrt

"Hvernig brosa sætar stelpur" spurði ég og fékk þennan svip

En svo brosti litla dýrið 


Iðunn enn upp á dótakassanum, þægilegasti staðurinn í stofunni

Grallaramons


Pabba/afa langaði alltaf svo í bolabít, ég held hann þurfi ekki að leita lengra


Ég treð mér með, sama hvað hver segir

Ylfa er svo sannarlega dönnuð

"Ó nei"


Þennan svip fékk ég um leið og hún reif myndavélina af mér

-Jóhanna

Thursday, October 11, 2012

Nihongo!


Það er svo mikið um það að gamalt fólk vilji spjalla við okkur stelpurnar. Það er líka gamalt fólk út um allt hérna. Það er ótrúlega duglegt að koma sér sjálft á milli staða, að því er virðist, eins og í lestinni. Kanski er ég bara að misskilja þetta allt saman, gæti verið að við búum bara nálægt dvalarheimili, en eins og er finnst mér allt morandi í gömlu fólki. Þegar við erum að koma af lestarstöðinni okkar þurfum við alltaf að taka lyftu niður á jarðhæð til þess að komst með kerruna út. Það er nánast bókað mál að við rekumst á a.m.k. eina gamla konu með tösku á hjólum. Þær eru reyndar rosalega fyndnar stundum. Fyrst taka þær ekki eftir börnunum en þegar þær líta á kerruna tapa þær sér alveg og sumar eru virkilega að halda aftur af sér að klípa ekki í kinnarnar á Iðunni og Ylfu sem taka þessu með stakri ró. Sem dæmi má nefna konu sem gleymdi sér algerlega og gleymdi að ýta á takkann, þar af leiðandi stóðum við í lyftunni í drjúga stund áður en við fórum niður. Það var ekki fyrr en að önnur kona kom að lyftunni og spurði hvort það væri ekki allt í lagi. Þá afsakaði sú gamla sig og ég skildi að hún sagðist hafa gleymt sér því að börnin væru svo sæt. Við flissuðum allar af þessu og komumst heilar á húfi niður með lyftunni.
        Þegar við fórum á bæjarskrifstofuna (sem er við hliðiná lestarstöðinni) um daginn, til að fá umsóknarblað fyrir leikskóla, kom til mín eldri maður sem spjallaði út í eitt. Þegar ég var búin að segja "Afsakið, ég skil ekki" um það bil tíu sinnum spurði hann hvort ég skildi ensku og ég játti því. Hann splæsti í mjög bandaríska ensku, með hreim og allt, og gat gert sig skiljanlegan. "Where are you from? How old are you (Ylfa)? Yes. Good. Both girls? (stelpurnar) Well, goodbye".  Ég svaraði honum á japönsku (og ensku líka) "Aisurando. Sansai. Hai. Hai. Ok, bye" Svo sat ég eftir og glóði af svita og vandræðalegheitum. Samt sigursæl að hafa lifað þetta. Ég var svo borubrött eftir þetta að ég skelli mér meira að segja í klippingu án þess að skilja meira en helminginn af því sem hárgreiðslumennirnir sögðu við mig. Side note: Ég veit ekki hvort ég mun nokkurtíman njóta þeirra réttinda að láta tvo karlmenn þurrka á mér hárið með hárblásara. Lúxus-Jóhanna.
        Í gær hinsvegar lentum við í hálf kjánalegum kringumstæðum. Það var gömul kona í lyftunni sem heilsaði okkur, og í þetta skipti, ýtti á takkann. Hún byrjaði að spjalla á fullu og ég stóð þarna með frosið bros og kinkaði kolli, hummaði og þóttist skilja eitthvað. Hún lét sér ekki nægja lyftuferðina heldur ætlaði að spjalla við okkur á labbinu líka ... og hún var að fara í sömu átt og við. Ég fann svitan spretta fram og endaði á því að kveðja hana mjög kurteisislega og labba miklu lengri leið heim. Ylfa horfði furðulega á mig alla leiðina heim, ekki alveg að skilja afhverju við værum að breyta út af vananum.
        Þetta varð til þess að ég leitaði uppi japönsku-kennslu sem er í boði í gegnum bæjarskrifstofuna. Ég þarf að kynna mér þetta nánar en sem stendur skilst mér að þetta kosti 2000 yen fyrir hálft ár (oh yeah!) og sé einu sinni í viku maður á mann í 6 mánuði. Ég þarf að skrá mig, get ábyggilega gert það í næstu viku þegar við sækjum um leikskóla fyrir Ylfu. Get ekki beðið.

-Jóhanna

Ylfa (í dótakassa) til yndisauka


Sunday, October 7, 2012

Atsjúhhh og fleirra

Það eru allir búnir að vera uppfullir af kvefi og pest hérna í um það bil viku núna, létum undan veikindunum á miðvikudaginn. Það er óhætt að fullyrða að allir eru komnir með meira en nóg af snítingum, hnerrum og stífluðum ennisholum. Stelpurnar voru sennilega með hita fyrstu tvo dagana en eru svo búnar að vera trallandi "hressar" á meðan við Nökkvi skiptumst á að leggjast í bælið. Nú er mánudagur og Nökkvi neyddist til þess að fara í skólann eftir vægast sagt sjúskaða helgi. Það hlakkaði í mér að þurfa ekki að fara neitt þangað til í fattaði að maturinn væri sama sem búinn í kotinu. Við trítluðum því út í búð, Iðunn í burðarsjali og Ylfa á tvemur jafnfljótum. Það reyndist vera hið ljúfasta veður og við nutum þess að láta sólina aðeins skína á okkur. Held stundum að ég ljóstillífi eins og plönturnar ... sólin er æði. Matarbúðin er bara á næsta götuhorni svo við vorum snöggar á milli. Loftkælingin sem hefur til þessa verið blessun í öllum hitanum var virkilega óþægileg með kvefinu svo við flýttum okkur að fylla körfuna okkar af allskonar dóti og komum okkur svo heim. Þá tók við að fóðra börnin og koma Ylfu í lúrinn sinn. Samanber nýjustu könnunum er ógeðslega leiðinlegt, ósamgjarnt og ófyrirlitlegt að segja einhverjum að leggja sig í hádeginu. Það er að segja ef það eitthvað að marka Ylfu. Hún sofnaði samt á endanum og ég hafði það huggulegt frammi með Iðunni. Þegar Stardust var um það bil hálfnum sofnaði Iðunn í fanginu á mér svo ég gat skutlað henni inn í rúm líka og átt alveg heilar 15 mínútur barnlaus áður en Ylfa vaknaði. Lúxus.
        Ylfa er búin að taka upp á hinum ýmsu "gelgjutöktum". Til að mynda segir hún "ó mæ dat" í hvert skipti þegar hún sér eitthvað út í búð sem henni hugnast. Dæmi: "Ó mæ dat mamma, sjáðu (einhver óþarfi). Ótrúlega flott" svo horfir hún á mann með glotti og hvolpa augum. Annað sem hún er byrjuð að gera, þegar henni sárnar eitthvað ógurlega eða er skömmuð þrammar hún inn í auka herbergið og leggst buguð í rúmmið. Stundum lokar hún meira að segja að sér. Þegar henni finnst hún hafa verið nógu lengi inni gargar hún á pabba sinn að koma og sækja sig og vill þá helst hanga á bakinu á honum. Þriðja vandamálið er svo það að hún hikar ekki lengur við það að taka í lurginn á systur sinni sem er klárlega ekki smábarn lengur. Iðunn er reynar núna á svipuðum aldri og Fannar (frændi) var þegar Ylfa fór að ganga í skrokk á honum líka. Hún er samt skömmuð um leið og eitthvað af þessum toga á sér stað. Iðunni sárnar þetta auðvitað stórkostlega en það tekur oftast svo langan tíma að fá Ylfu til að biðjast afsökunar að oftast er fórnarlambið búið að gleyma áflogunum og skriðið í burtu. Ég var að lesa grein um "the terrible twos" eða "hinn hræðilega tveggja ára aldur" og Ylfa fellur ansi vel inn í þá grein. Þetta mun s.s. vonandi líða hjá.
         Iðunn, monsið atarna, er heldur ekki búin að sitja iðjulaus og er búin að leggja mikinn metnað í það að læra að klifra hratt upp í sófann og helst upp á sófabakið þar sem hún getur teygt sig í gardínurnar. Þar sem ég sit og skrifa þetta núna stendur hún einmitt upp við matarborðið og teygir sig eftir dóti sem hún veit hún á ekki að fikta í. Fiktið heldur áfram! Hún er til allrar hamingju búin að fatta hvernig hún kemst niður úr sófanum og er hætt að láta sig bara góssa fram af eins og hún hafði gert annars. Hún er ólm í að fá að opna ísskápinn en það getur reynst erfitt að opna hurð sem maður stendur upp við. Það sama á við um þegar maður skríður inn í hergbergi og lokar óvart á eftir sér. Þá hefur reynst best að setjast niður og garga á mömmu sína, sem kemur og bjargar manni. Hingað til hef ég notið þeirra þæginda að hafa lokað inn í svefnherbergi svo að þegar Iðunn vaknar á undan okkur skríður hún bara um þar (inn í svefnherbergi hjá okkur) og bíður þess að við vöknum. Núna er monsan búin að læra á rennihurðirnar og friðurinn því endanlega búinn. Þetta trix er líka gott að kunn til þess að komast inn í stóra skápinn í svefnherberginu þar sem er ljómandi gott að skríða og fara í feluleik með stóru systur þegar hún nennir að leika. Iðunn er svo mikill forkur að ég gæti alveg trúað henni til að fara að labba von bráðar bara til þess að geta fiktað í fleirri hlutum.
        Enda póstinn á nokkrum myndum...


Ylfa stillir upp fyrir myndatöku (sem hún stírði sjálf)

Uppstilling í boði Ylfu, að hennar mati skiptir ekki máli þó ljósið skíni aftaná

Nýbaðað Úlfaskott með harðsoðið egg og handklæðatúrban


Taubleyjumonsa, líka nýböðuð


Krúttlegustu sælgætisumbúðir sem ég hef séð til þessa. Nökkva finnst nammið úr þessu samt vont.


Hamagangur á háttatíma, skápurinn breyttist í helli sem varð að fela sig í


Gríslingurinn á ferð og flugi


Fann þetta út í búð áðan, hljómar vel fyrir kvefaða konu!


Friðsælar systur í hádegislúr, þrátt fyrir að sumir væru þarna gegn vilja sínum

-Jóhanna

Wednesday, October 3, 2012

Ylfa hefur talað!

Dvölin í Japan hefur orðið til þess að þegar Ylfa sér myndir í tölvunni af fólkinu sínu hefjast alltaf miklar einræður um það hvað hver og einn er að gera. Hún fer líka að tala um fjölskylduna sína ef hún rekur augun í eitthvað sem minnir hana á þau. Hér eru nokkur dæmi:

Við erum með hópmynd úr brúðkaupinu í bakgrunn á tölvunni. Ylfa rak augun í það og byrjaði að þylja upp öll nöfnin á ættingjum sínum. Þegar röðin var komin að Bjarna stoppaði hún aðeins og horfði alvörugefin á mig og sagði : Mamma, ég hjálpa honum Bjarna mínum.

Ylfa og Nökkvi spjalla gjarnan um lífið og tilveruna rétt fyrir svefninn. Ylfa krefst þess stundum að pabbi hennar segji henni söguna af Rauðhettu. Útgáfan er krydduð til af þeim feðginum. Rauðhetta er með appelsínugult hár, hún er að fara með nammi til ömmu sinnar og má ekki fara yfir götuna en gerir það samt, úlfurinn fer og étur ömmu og Rauðhettu að venju en í staðinn fyrir veiðimann kemur Ívar og sker gat á magann á úlfinum. Úlfurinn fer á dýraspítala til að láta sauma magann sinn.

Ylfa að tala um Önnu frænku og Ívar: Ívar, ha mamma, hann ætlar að koma og sækja okkur og ég ætla að leika við Ásdísi Katrínu mína. Anna .... Anna.... hún hérna .... hún er mamma hennar Viktoríu.

Á leiðinni upp í verslunarmiðstövarnar göngum við alltaf framhjá bílasölu sem heitir Sierra og er greinilega með umboð fyrir Volgswagen. Ylfa sá skiltið og byrjaði: Signý á þennan staf (bendir á S) og Anna mín hún á þennan staf (bendir á A) og AMMA mín á þennan bíl (bendir á VW).

Ef barnið sér mynd af ömmu sinni í Borgarnesi þarf alltaf að minnast á að amma hafi prjónað eitthvað. Ef hún sér mynd af afa kemur alltaf sama ræðan: Afi minn hann er ekki með neitt hár, en það er allt í lagi ... og Ronja hún er kisa!

Hún rak augun í mynd af Hrefnu frænku sinni: Hebbý klippa hárið á pabba og hárið fór á gólfið en það má ekki klippa hárið á pabba! (Þá segji ég henni að pabbi hennar hafi beðið um að láta klippa á sér hárið) Allt í lagi það má klippa hárið, en það má ekki fara á gólfið.

Hún var að skammast í systur sinni einhvern daginn, þegar við vorum nýkomnar til Japan. Hættu Fannar Hrafn! Ha, nei þú ert ekki Fannar. Svo hló hún af ruglinu í sjálfri sér.

Hún er staðráðin í því að Þorkell eigi tölvuúr sem Nökkvi fékk á McDonalds, hreinlega afþví að Þorkell barst eitthvað í tal þegar við vorum að skoða úrið. Þetta eina skipti prentaðist algerlega inn í hausinn á henni og fast þar. Ef hún rekst á úrið þá þarf alltaf að minnast á að þetta sé alveg eins og Þorkell.

Svo er hún bara almennt hress og talar mikið um ævintýri sem hún hefur lent í með hinum og þessum. Það er merkilegt hvað henni finnst mikilvægt að segja minn og mín við sum nöfn. Anna systir, frænka í þessu tilfelli, er alltaf Anna mín og sama gildir um Ásdísi Katrínu og Fannar Hrafn. Krúttlegt en ég hef ekki enn fengið nein svör við því afhverju þetta er svona.

Ekki meira að sinni

-Jóhanna

Tuesday, October 2, 2012

Votturinn snýr aftur!!!

Hah, vantaði spennandi titil á færslu dagsins. Fyrir nokkrum vikum síðan kom hingað gömul kona og bankaði upp á. Hún setti upp skelfingar svip þegar mjög svo ó-japönsk og úfin Jóhanna kom til dyra. Ég náði því að hún væri votti þar sem hún gat sagt "Christian" á ensku og svo skildi ég að hún ætlaði að koma aftur seinna. Ég lokaði og passaði mig að vera ekki heima daginn eftir því að ég nennti ekki að díla við sömu vandræðilegheitin aftur. Í dag hinsvegar þegar við mæðgur vorum á leiðinni út var bankað upp á. Í þetta skipti var ung kona fram á gangi og sú talaði reifbrennandi ensku. Ég hélt/vonaði að þetta væri bara nágranni að koma að kynna sig (hef ekki hugmynd um hvernig meiri hluti fólksins lítur út sem býr hérna). Hún spurði hvort að það hefði ekki komið gömul kona til okkar fyrir nokkru síðan og að hún væri komin til þess að ræða við mig um biblíuna. "Óóókeeeeeyyyyy" sagði ég með frosið bros. Við eigum sem sagt ekki að komast hjá þessu á nokkurn máta. Mér til mikillar undrunar var þetta hin almennilegasta kona. Óvenju lítil pressa, ekki að ég sé alltaf að spjalla við votta jehóva ætli þetta hafi ekki verið fjórða skiptið. Hún spurði bara hvort að mér þætti ekki mikilvægt að fólk lifði með "hope in their hearts" og "positive thinking". Jú, jú gott að vera jákvæður. Ég fékk það pínu á tilfinninguna að hún væri að gera einhverjum greiða með því að vera þarna því hún hafði ekki svo mikinn áhuga á því sem hún var að tala um. Eða ok hún var ekki jafn mikið að nenna að spjalla um biblíuna eftir að ég upplýsti hana að ég væri kristintrúar. Kom svona augnaráð "Aha! Verki mínu er lokið" á hana og svo fór hún bara að spjalla og segja frá sjálfri sér. Virkaði bara ágæt greyið. Hún kvaddi okkur og sagðist ef til vill kíkja á okkur aftur seinna. Það verður að segjast að ég bjóst ekki við því að vera að fara að lenda í svona mörgum samtölum um Biblíuna þegar við komum hingað. Hingað til er ég búin að tala við tvo votta og við Nökkvi lentum í kristniboðunum á róluvellinum. Nökkvi reyndar hitti þau aftur og þá mundu þau ekki eftir því að vera búin að tala við hann, tvöföld gleði fyrir Nökkva sem reyndi eins og hann ætti lífið að leysa að segja þeim að hann væri kristinn svo þau myndu hætta að elta hann. Búdda múnkarnir eru alltaf bara sultu slakir og segja ekkert standa bara með skál og þakka þeim sem leggja þeim lið. Svo eiga þeir líka svo mega flott sjöl (ég veit að þetta eru ekki sjöl en vegna skorts á betra nafni...). Spurning hvar þetta endar.
           Við stelpurnar röltum upp í verslunarmiðstöð til þess að kaupa barnamat handa Iðunni, hann færst svo miklu ódýrari þar heldur en út í búð. Hugurinn var samt ekki allur í barnamatnum því mig er búið að langa til að prófa að nota taubleyjur á krakkagríslingin í lengri tíma en aldrei lagt í það. Okkar heitt elskaða barnabúð Akachan selur fullt af þeim og að sjálfsögðu í öllum regnbogans litum. Eftir að hafa staðið í korter yfir úrvalinu sendi ég Nökkva skilaboð þess efnis hvort ég mætti prófa þetta og fékk leifi fyrir bleyjukaupunum (vúhú!). Við erum nú stolti eigendur tveggja buxna (einar bleik/gul doppóttar og aðrar grænar með stjörnum) en ákváðum að kaupa ekki fleirri strax þar sem þetta er allt á mjög svo miklu tilraunastigi. Held að Bryndís eigi heiðurinn á þessum innkaupum þar sem hún minntist eitthvað á bréfbleuyjuskort ... núna þegar ég er hinsvegar að reyna að finna téð málefni sé ég að ekki. Kannski bjó ég þetta allt til í hausnum á mér sem löggilda afsökun fyrir því að kaupa taubleyjur. Eins og stendur hanga bleyjurnar hér til þerris og verða því ekki nothæfar fyrr en í fyrramálið í fyrsta lagi. Það voru reyndar til óhugnarlega mikið af æfingabuxum (þ.e. hætta-með-bleyju-nærbuxur) og mig langaði miklu frekar að kaupa svoleiðis því þær eru svo töff. Það er Disney-eitthvað á svona 50% af öllu barnadóti sem ég hef séð hérna úti, æfingabuxurnar lúta sama lögmáli. Hver veit hvort maður splæsi ekki í par einn daginn.
         Eftir bleyjukaup fórum við og versluðum í matinn og Ylfa keypti sér eina fingrabrúðu í safnið. Hún ætlaði helst ekki að borga heldur bara sýna stelpunni á kassanum að hún ætti pening og að hún ætlaði að eiga þennan kall. Hún borgaði á endanum, pínu foj yfir þessu "kjánalega" fyrirkomulagi en rosa sátt með nýja kallinn sem að þessu sinni er vondi kallinn úr Castle in the Sky sem heitir Múska! Við röltum aðeins um til þess að drepa smá tíma og fórum svo okkar vanalegu leið heim, s.s. í lestinni. Ylfa sofnaði í kerrunni á leiðinni heim svo ég varð að fara þrjár ferðir upp og niður stigann til að bera allt dótið inn og ná í hana úr kerrunni. Mikið er ég fegin að við búum bara á annari hæð.
         Nökkvi kom ekki mikið seinna heim en við og kom að Ylfu sofandi upp í rúmi. Krakkinn var vakinn og borin fram. Hún var ekki alveg sjálfri sér lík og vildi bara kúra. Þegar við vorum svo að fara að borða var okkur orðið ljóst að úlfaskottið var bara bullandi lasin. Við erum búin að vera að slást við einhverja leiðinda flensu. Stelpurnar eru báðar búnar að vera að hósta og ræskja sig en útivistin í dag hefur sennilega ýtt Ylfu yfir þröskuldinn. Hún er nú samt ekki mikið lasin, bara þreytt og sama sem hitalaus. Það hjálpaði líka óneitanlega að fá að kúra bara í pabba-fangi og horfa á teiknimyndir. Iðunn hefur líka gott af því að slappa aðeins af innandyra svo ég býst við að ég fari ekki á neitt flandur næstu tvo daga. Það fer nú ekki svo illa um okkur hérna heima, hér er nóg af dóti til að leika sér af og í "versta" fallir verða þær bara að leika við hvora aðra. Hefði ég séð aðeins fram í tímann hefði ég ábyggilega keypt aðeins meira að borða í matarbúðinni en Nökkvi hlýtur að geta hleypt mér út í búð eftir skóla. Ef ekki sveltum við bara fram á föstudag. Klárum sennilegar fyrst úr skápunum EN svo sveltum við.

-Jóhanna