Eftir vinsamlega ábendingu frá Önnu systur á facebook þori ég ekki öðru en að blogga. Það hefur ekki mikið drifið á daga okkar, bara þetta sama gamla, en í gær fórum við til Kyoto sem er frásögu færandi.
Við áttum að hitta fólk klukkan 13 í Kyoto og þar sem Jón var líka að fara ákváðum við að hittast upp á lestarstöðinni okkar og vera samferða. Dagurinn var nokkurskonar afmælis-thing fyrir Jón sem átti afmæli 25. Eftir leiðinlegustu lestarferð til þessa s.s. Ylfa þreytt og pirruð og Iðunn á öskrinu því hún var þyrst en þar sem það tíðkast ekki að gefa á almanna færi þorði ég ekki að brjóta þá reglu í lestinni sem oft á tíðum var ansi full. Við komumst þó á leiðarenda hálf lurkum lamin og hittum Arisu, Kae, Siggu, Svavar og tvær vinkonur hans úr skólanum við lestarstöðna. Við byrjuðum á því að fara og fá okkur hádegismat sem var bara ljómandi góður, kostaði ekki aðra höndina OG ég fékk ost! Fékk mér litla pizzu með einhverju kjöti á og sat út í horni og malaði meðan ég borðaði. Nökkvi fékk sér líka pizzu og var auðvitað búinn með hana strax en ostasjúklingurinn ég neitaði að gefa honum af minni pizzu.
Ylfa hress á veitingastað
Eftir að hafa sagt skilið við langþráðustu pizzu í lengri tíma héldum við upp á strætó stöð. Förinni var heitið til Kinkakuji sem er ljómandi fallegur staður. Meðan við biðum eftir strætónum sáum við vespu/randaflugu fyrirbæri sem leit út eins og loðinn humar. Það var ógeð. Strætóferðin var allt í lagi en Ylfa vildi frekar vera úti. Á leiðinni bættist Dagbjört í hópinn og þegar við vorum komin að Kinkakuji hittum við líka Kristinn og Jóhann. Note: Öll þessi íslensku nöfn sem þið kannist ekki við eru krakkar úr japönskunni sem eru líka að skiptinemast.
Hofið er mjög fallegt og hippinn í mér varð hinn hressasti við það að komast út í smá náttúru. Þó að það væri ekki þverfótað fyrir túristum var samt merkilega friðsælt þarna inni (í garðinum). Við sáum hegra veiða sér síli og svo á öðrum stað hóp af hressum koi fiskum að bursla. Elska koi þeir eru svo fallegir! Það var hálf rigningalegt svo við vorum með regnhlífarnar hálf opnar viðbúin því versta. Ylfa vaknaði þegar regndroparnir fóru að falla og var vægast sagt ringluð, við hverju er svosem að búast ef maður sofnar á einum stað og vaknar á öðrum. Hún var samt kát og spenntist öll upp þegar við gengum framhjá stað þar sem fólk var að kasta klinki. Ég veit ekki nákvæmlega til hvers það var en Ylfu leist vel á það.
Kikakuji, eiginlega alveg eins og húsið sem við leigjum bara gulllitaðYlfa var hér - meðvitundarlaus
Arisa, Kae, Nökkvi og Ylfa. Aðgöngumiðarnir áttu að vera til heilla.
Hegri að chilla
Það voru fleirri hús þarna á svæðinu.
KOI!
Klinkfjallið
Það var heljarinnar ganga að labba þarna í gegn. Við vorum orðin svo mörg að það var alltaf verið að stoppa til að athuga hvar hinir væru en við lifðum þetta af og allir komust út í heilu lagi. Ylfa fékk að smakka eitthvað sælgæti í einum sölubásnum og smjattaði glaðlega á því það sem eftir var af garðinum. Við stoppuðum svo til að ákveða hvað við skildum gera næst. Það voru einhverjar hugmyndir um að fara í annað hof en Nökkvi (og fleirri) stungu frekar upp á því að fara í karókí. Ferðin varð strax 50% minna menningarleg en tilhugsunin um að fá að setjast niður og syngja kallaði meira á fólk heldur en að standa í röð og bíða eftir þvi að komast að einhverju hofi. Við höfum líka nánast ár í viðbót til að fara aftur þarna og skoða það sem við slepptum. Þar sem við stóðum komu tvær konur úr sölubás, að ná í skiltið sitt, sem misstu sig yfir Ylfu og Iðunni. Rosalega hljótum við að búa til falleg börn hohoho. Þær klipu í kinnina á Iðunni og sögðu að hún liti út eins og dúkka. Við fórum aftur í strætó og Ylfa var merkilega róleg, svona miðað við fyrri reynslu af strætó og bílveiki. Hún var líka meira en lítið til í að fara að syngja og sagði aftur og aftur "Ég ætla að syngja Tótóró!"
Nökkvi að syngja Metro með System of a Down.
Mikið stuð að syngja Bohemian Rhapsody með Queen
Eftir að hafa þanið raddböndin fórum við og fengum okkur aftur að borða enda klukkan orðin sjö og fólk svangt eftir daginn. Við fórum á okonomiyaki stað. Þá vorum við Iðunn samt báðar orðnar aðeins of þreyttar og engan vegin samstilltar svo að matartíminn minn fór í það að passa að hún kæmi ekki við hitaplötuna á borðinu og henti ekki öllu á gólfið. Ég held að maturinn hafi verið góður. Þarf klárelga að fara aftur með rólegri börn. Ylfa gúffaði matnum i sig, sem er fyndið því að þegar við erum með okonomiyaki í matinn á íslandi neitar hún yfirleitt að borða (svik og prettir).
Nökkvi á veitingastað
Arisa, japönsku félagi hans Jóns (held hún heiti Saki) og brot af Jóni
Sátum á tvemur borðum, þetta er okkar borð
Jón að þykjustu blása á kertin á afmælisköku sem Jun kom með.
Jón fékk pakka og Nökkvi líka!
"Takk fyrir miiig"
Ylfa á réttum stað í lífinu
Ylfa og Moe spjalla saman yfir kökubita
Þreyttar mæðgur, ég var sennilega syfjaðari en barnið.
Nökkvi - til yndisauka
Partý-Ylfa er ber Ylfa.
Við komum heim rétt fyrir miðnætti og Ylfa fór mygluð upp í rúm. Hún sofnaði í lestinni og lét pabba sinn halda á sér heim. Iðunn varð hin hressasta um leið og við ætluðum upp í rúm svo að ég varð að gjöra svo vel að veita henni félagsskap á með Nökkvi og Ylfa hrutu inn í rúmi.
Þegar við vöknuðum í morgun var ég með vöðvabólfu, Ylfa lág hálf á gólfinu, Iðunn var úfnari en allt og Nökkvi var með höfuðið til fóta. Ég henti honum "ofur blíðlega" fram úr rúminu og krafðist svefns. Þau voru farin fram með það sama og ég gat legið aðeins lengur. Núna rignir og allir, nema ég, liggja hér sofandi. Ég er samt að vona að það fari að stytta upp hér hangir nefninlega þvottur úti á svölum sem má alveg við því að fá að þorna ( -10 húsmóðurstig fyrir að gleyma þvottinum úti). Þetta ætti að svala bloggþorsta systur minnar í bili.
-Jóhanna
Þegar við vöknuðum í morgun var ég með vöðvabólfu, Ylfa lág hálf á gólfinu, Iðunn var úfnari en allt og Nökkvi var með höfuðið til fóta. Ég henti honum "ofur blíðlega" fram úr rúminu og krafðist svefns. Þau voru farin fram með það sama og ég gat legið aðeins lengur. Núna rignir og allir, nema ég, liggja hér sofandi. Ég er samt að vona að það fari að stytta upp hér hangir nefninlega þvottur úti á svölum sem má alveg við því að fá að þorna ( -10 húsmóðurstig fyrir að gleyma þvottinum úti). Þetta ætti að svala bloggþorsta systur minnar í bili.
-Jóhanna
Uber-cool! En Nökkvi hlítur að hafa verið að drepast í höndunum... :)
ReplyDeleteSumar myndirnar eru svoldið bláar (nei, ekki þannig bláar!!)... spurning með að fikta í whitebalance stillingunni á myndavélinni? :)
Já það er klárlega ekki allt með felldu, athuga með wb annars kann ég skammarlega lítið á myndavélina þrátt fyrir þriggja ára sambúð. (Meira en Nökkvi samt sem kann ekki að kveikja á flassinu :[ )
DeleteJá ! Þetta kalla ég viðburðarríki.
ReplyDeleteP.S: Uppljóstraðu leyndardómnum um japanapósið í næsta bloggi. Hef brotið heilann um þetta síðan ég var 10 ára
Það hafa greinilega fleirri velt þessu fyrirbæri fyrir sér sjá: http://patrickmccoy.typepad.com/lost_in_translation/2008/04/japanese-custom.html
DeleteHæ hæ kæra fjölskylda.
ReplyDeleteLoksins kom blogg eftir viku ritstýflu.
Gaman að sjá myndirnar, nú er einn mánuður
Í Landi Hinnar Rísandi Sólar liðinn.
Kær kveðja
Tolli.
www.hvitatravel.is/borgarnes-today
10 mánuðir til stefnu.
Delete